Matarbúðin er byggð á hugmynd sem okkur hefur lengi dreymt um, verslun sem selur allt í gleri eða lífniðurbrjótanlegum umbúðum. Við ætlum að endurvekja mjólk í flösku og vera með skilakerfi fyrir glerumbúðir okkar. Við höfum komið upp sérstakri þvottastöð sem mætir ströngum reglum hvað varðar allt hreinlæti og sótthreinsun og sett upp þæginlegt skilakerfi fyrir viðskiptavini.
Við munum bjóða uppá ýmsar matvörur bæði beint frá býli og stærri framleiðendum. Vöruúrvalið er ætlað til að mæta helstu þörfum heimila svo viðskiptavinir eiga að geta keypt inn fyrir heimilið sínar helstu vörur í umhverfisvænum umbúðum og geta skilað þeim í endurnýtingu.